Viggó Sigurðsson ráðinn þjálfari Fram

Viggó Sigurðsson tekur við liði Framara.
Viggó Sigurðsson tekur við liði Framara. mbl.is/Brynjar Gauti

Viggó Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik til tveggja ára en hann tekur við af Ferenc Buday að þessu keppnistímabili loknu.

Viggó staðfesti þetta við Morgunblaðið í dag og nánar er fjallað um ráðningu hans í blaðinu á morgun, og um tengsl hans við Fram sem ekki eru á allra vitorði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert