Fram sigraði Íslandsmeistaralið Vals, 29:27, í N1 deild karla í handnattleik en leikurinn fór fram í íþróttahúsi Fram. Staðan í hálfleik var 13:12 fyrir Val.
Rúnar Kárason skoraði 10 mörk fyrir Fram en Baldvin Þorsteinsson var atkvæðamestur í liði Vals með 6 mörk. Fram náði tveggja marka forskoti um miðjan síðari hálfleik, 19:17, en Valur skoraði þá 6 mörk í röð. Þegar um 9 mínútur voru eftir af leiknum var Valur með tveggja marka forskot, 24:22, en Fram var sterkara á lokasprettinum.