Haukar unnu HK 30:25 í N1 deild karla í handknattleik í dag eftir að hafa verið 17:13 yfir í leikhléi. HK tókst að minnka muninn nokkrum sinnum í tvö mörk í síðari hálfleik en nær komust Kópavogsbúar ekki. Haukar með sex stiga forystu í efsta sæti deildarinnar.