Valur tryggði sér í kvöld þriðja sætið í N1 deild karla í handkattleik þegar liðið sigraði Fram, 37:32, á heimavelli sínum að Hlíðarenda. Reykjavíkurliðin hafa þar með lokið keppni á Íslandsmótinu í ár en þrír síðustu leikirnir fara fram á morgun.
Haukar hafa 45 stig í efsta sæti, HK og Valur hafa 36 en HK, sem mætir Haukum á morgun hefur betur í innbyrðisviðureignum gegn Val. Fram er svo í fjórða sætinu með 34 stig.