Aftur jafntefli á HM í Makedóníu

Arna Sif Pálsdóttir gerði 5 mörk í dag.
Arna Sif Pálsdóttir gerði 5 mörk í dag. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, gerði í kvöld jafntefli við  Slóveníu í öðrum leik sínum á Heimsmeistaramótinu. Lokatölur 26:26.

Staðan í leikhléi var 13:10 og var íslenska liðið yfir allan leikinn, nema þegar 10 sekúndur voru til leiksloka jöfnuðu heimamenn og þar við sat.

Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst með 6 mörk og Arna Sif Pálsdóttir gerði fimm mörk. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert