Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, er heldur betur að slá í gegn á Heimsmeistaramótinu í Makedóníu. Í kvöld vann liðið Þýskaland 24:23 og er komið með 4 stig eftir þrjá leiki.
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst með 6 mörk fyrir Ísland og Karen Knútsdóttir gerði fimm.
Íslenska liðið komst bakdyramegin inn í keppnina og lenti þar í „dauðariðlinum“ og hefur staðið sig frábærlega þar, unnið einn leik og gert tvö jafntefli.