Ólafur skoraði fjögur mörk í tapleik

Ólafur Stefánsson skorar framhjá Ruben Garabaya.
Ólafur Stefánsson skorar framhjá Ruben Garabaya. AP

Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad Real sem tapaði með minnsta mun, 26:25, gegn Barcelona í meistarkeppninni í spænska handboltanum í gær.

Ciudad Real vann bæði spænska meistaratitilinn og spænsku bikarkeppnina en í þessum leik mætast sigurliðin úr þeirri keppni. Barcelona tapaði úrslitaleiknum í bikarkeppninni og var því mótherji Ciudad.

Ólafur skoraði 2 mörk úr vítaköstum í leiknum. Ciudad Real sigraði í þessari keppni á síðasta ári þar sem liðið hafði betur gegn Barclona, 32.30.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert