Róbert Gunnarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach sem sótti Rhein-Neckar Löwen heim í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag og hafði tveggja marka sigur, 29:27. Þá lék Guðjón Valur Sigurðsson með Rhein-Neckar liðinu og skoraði 4 mörk í leiknum gegn sínum gömlu félögum í Gummersbach.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel eru áfram á toppi deildarinnar eftir stórsigur á Straslunder, 43:22. Sænska kempan Stefan Lövgren var markahæstur hjá Kiel með 9 mörk og hinn tékkneski Filip Jicha skoraði jafnmörg mörk fyrir Kiel.
Einar Hólmgeirsson komst ekki á blað hjá Grosswallstadt sem tapaði heima fyrir Nordhorn, 23:30.
Jalesky Garcia skoraði eitt mark í 30:23-tapi Göppingen fyrir Hamburg.