Einn efnilegasti handknattleiksmaður landsins, Örn Ingi Bjarkason, er genginn til liðs við FH úr Aftureldingu og verður löglegur með sínu nýja félagi strax í næsta leik þess á miðvikudaginn eftir viku.
Bætist þar góður liðsauki í afar góðan hóp FH en þar eru fyrir margir af efnilegri strákum landsins í handboltanum og framtíðin í Hafnarfirðinum björt með tilliti til handboltans.
Næsti leikur FH er einmitt gegn fjendunum úr Haukum á miðvikudaginn 5. nóvember.