Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann í dag eins marks sigur á Þýskalandi, 30:29 ytra. Í gær náði Ísland jafntefli við liðið og því um afar góð úrslit að ræða. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var enda ánægður með þetta allt.
„Ég er gríðarlega ánægður með þetta. Að koma og mæta heimsmeisturunum á útivelli með mikið breytt lið frá því við vorum á Ólympíuleikunum er erfitt verkefni. Þetta voru líka erfiðir leikir. En að að ná sigri og jafntefli eru frábær úrslit. Ég er kampa kátur með þetta,“ sagði Guðmundur við mbl.is.
Nánar verður fjallað um landsleiki Íslands og Þýskalands og rætt við frekar við Guðmund landsliðsþjálfara í Morgunblaðinu á morgun.