Sigurður Ari Stefánsson átti stórleik og skoraði átta mörk fyrir Elverum þegar liðið vann stórsigur á Sandefjord, 32:22, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Elverum er í 5. sæti með 10 stig að loknum 9 leikjum.
Kristinn Björgúlfsson skoraði einu sinni þegar lið hans Runar tapaði fyrir Fyllingen, 31:23, í toppslag norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Runar er 3. sæti deildarinnar með 13 stig eftir 9 leiki, er þremur stigum á eftir Fyllingen.