Nantes vill fá Andra Berg frá Fram

Andri Berg Haraldsson er undir smásjá franska liðsins Nantes um …
Andri Berg Haraldsson er undir smásjá franska liðsins Nantes um þessar mundir. Ómar Óskarsson

Franska handknattleiksliðið Nantes hefur sýnt áhuga á að fá Andra Berg Haraldsson, leikstjórnanda úr Fram, í sínar raðir fyrir næsta tímabil. Andri staðfesti við Morgunblaðið í gær að hann vissi af fyrirspurnum frá Nantes og kvaðst mundu skoða það vel ef í ljós kæmi að um alvöru væri að ræða hjá Frökkunum.

Hann er samningsbundinn Fram til vorsins 2011 og Frakkarnir þyrftu því að ná samkomulagi við Safamýrarfélagið um kaupverð ef til kæmi.

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert