Lærisveinar Dags Sigurðssonar í austurríska landsliðinu í handknattleik töpuðu í gær síðari æfingaleik sínum við Slóveníu, 32:29. Leikið var í Hard í Austurríki. Heimamenn höfðu sigur í fyrri æfingaleiknum í fyrrakvöld, 33:32.
Austurríska landsliðið býr sig af kappi undir Evrópumótið sem haldið verður eftir ár, en þeir verða einmitt gestgjafar þess.
Í næstu viku leikur austurríska landsliðið tvo æfingaleiki við Hollendinga.