Sigurður Eggertsson leikmaður mfl. Vals í handknattleik sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í gær.
„Ummæli þau er höfð voru eftir mér í Morgunblaðinu eftir leik Vals og Stjörnunnar í gær, þar sem ég sagði lið Stjörnunnar lélegt, áttu á engan hátt rétt á sér. Þau voru sögð í æsingi eftir leik og voru vanhugsuð. Biðst ég innilega afsökunar á þeim.“
Sigurður Eggertsson leikmaður Vals og annars annálaður gleðigjafi.