Nú í hádeginu var blásið til blaðamannafundar fyrir úrslitaleikina í Eimskipsbikarnum í handbolta um helgina. Þar mætast lið Stjörnunnar og FH í kvennaflokki, en Stjarnan er núverandi bikarmeistari.
„Stjarnan er að mínu viti með besta kvennaliðið á landinu í dag. En líkt og við í FH, þá hafa þær misst svolítið dampinn í deildinni undanfarið og toppsætið því Hauka í bili. Þær hafa mikla sigurhefð, eru vanar að vinna titla, meðan FH vann síðast bikarinn árið 1981. En á móti kemur, að stelpurnar hafa mikið hungur. Hungur í sigur. Og FH er félag á uppleið. Umgjörðin, stemmingin og árangurinn ber það greinilega með sér. Og það er alltaf bónus að komast í svona stóran leik. En við munum gera allt til þess að sigra,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari kvennaliðs FH.
„Já, við unnum Val og Hauka á útivöllum liðið hefur spilað frábærlega í þessum erfiðu leikjum. Mér líst vel á þennan slag og finnst gaman að taka þátt í þessu sem þjálfari. Það eru sex leikmenn í liðinu sem spiluðu úrslitaleikinn í fyrra og þær vita því út á hvað þetta gengur. Nú þurfa þær að miðla þessari reynslu til hinna leikmannanna og klára dæmið," sagði Atli.
Leikurinn hefst klukkan 13.30 á laugardaginn.