Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Handknattleiksdómarasamband Íslands (HDSÍ) standa fyrir dómaranámskeiðum í samráði við aðildarfélög, eftir því sem greint er frá á heimasíðu HSÍ. Mikil umræða hefur verið um störf dómara á síðustu dögunum og kjörið að kanna undirtektir félaga innan HSÍ við námskeiðshaldi.
Hvert félag sem vill standa fyrir námskeiði, safnar saman þátttakendum og sér um utanumhald á hverju námskeiði fyrir sig. Ef ekki næst næg þátttaka þurfa félög að sameinast um námskeið.
Lágmarksfjöldi á hvert námskeið eru 20 og er 500 kr. gjald á hvern einstakling. Auk samkomusalar þarf námskeiðshaldari að útvega skjávarpa fyrir Power Point glærur og DVD diska og tússtöflu. Einnig þurfa væntanlegir þátttakendur að lesa yfir handboltareglurnar sem finna má á heimsíðu HSÍ.
Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér.