Birkir Ívar valinn sá besti

Birkir Ívar Guðmundsson.
Birkir Ívar Guðmundsson. mbl.is

Deildarmeistarar Hauka eiga þrjá menn í úrvalsliði 15. til 21. umferðar N1-deildar karla í handknattleik auk þess sem besti leikmaður þessa tímabils kemur einnig úr röðum þeirra, það er Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður.

Hinir tveir leikmenn Hauka sem skipa liðið eru hornamaðurinn Freyr Brynjarsson og stórskyttan Sigurbergur Sveinsson. Gunnar Magnússon, þjálfari HK, var valinn þjálfari síðasta þriðjungs deildarinnar og Akureyri þótti hafa skapað besta umgjörð á heimaleikjum sínum. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Akureyrarliðið hreppir þetta hnoss.

Úrvalslið 15. - 21. umferðar N1-deildar karla er skipað eftirtöldum leikmönnum:

Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum

Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum

Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum

Miðjumaður: Valdimar Fannar Þórsson, HK

Hægri skytta: Bjarni Fritzson, FH

Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val

Þjálfari: Gunnar Magnússon, HK

Besta umgjörð: Akureyri

Besti leikmaður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum

Dómarapar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert