Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach þegar liðið sigraði slóvenska liðið Gorenje Velenje, 29:28, á útivelli í fyrri viðureign liðanna í úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik. Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Gummersbach um næstu helgi.