Gummersbach, lið Róberts Gunnarssonar, sigraði í dag í EHF-bikarnum í handknattleik, lagði RK Gorenje 26:22 í síðari úrslitaleiknum.
Gummersbach sigraði einnig í fyrri leiknum sem var í Slóveníu, 29:28. Róbert gerði þrjú mörk fyrir Gummersbach í leiknum í dag en markahæstir urðu þeir Vedran Zrnic og Momir Ilic með 7 mörk hvor um sig.