Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir SG GC Amicitia Zürich þegar liðið vann átta marka sigur á HC Kriens-Luzern, 32:24, í svissnesku A-deildinni í handknattleik en leikurinn markaði upphaf sjöundu umferð deildarinnar.
Þessi öruggi sigur kom nokkuð á óvart þar leikurinn fór fram á heimavelli HC Kriens-Luzern sem var fyrir leikinn var taplaust í efsta sæti deildarinnar ásamt Kadetten, liði Björgvins Páls Gústavssonar, landsliðsmarkvarðar.
Amicitia Zürich er í fjórða sæti deildarinnar með 10 stig þegar sjö leikir eru að baki. Á laugardaginn leikur Amicitia Zürich í fyrstu umferð riðlakeppni meistaradeildarinnar. Þá taka Kári og félagar á móta spænska stórliðinu Barcelona.