Guðjón Finnur til liðs við Framara

Guðjón Finnur Drengsson í leik með Fram gegn Haukum.
Guðjón Finnur Drengsson í leik með Fram gegn Haukum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Handboltamaðurinn Guðjón Finnur Drengsson er genginn til liðs við Fram að nýju en hann hefur leikið með þýska liðinu Kassel síðustu mánuðina. Guðjón mun leika einn leik til viðbótar með þýska liðinu en verður svo kominn til liðs við Safamýrarliðið þegar það mætir Íslandsmeisturum Hauka á Ásvöllum þegar keppni hefst að nýju í N1-deildinni eftir EM þann 4. febrúar.

Guðjón er öllum hnútum kunnugur hjá Fram en hann á baki hundruð leikja með því en hann hóf að leika með meistaraflokki félagsins árið 1999.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert