Viggó Sigurðsson er tekinn við þjálfun karlaliðs ÍR í handknattleik. Fréttavefur RÚV greinir frá þessu í dag. Hann tekur við ÍR-liðinu af Andrési Gunnlaugssyni sem hætti með liðið á dögunum.
ÍR-ingar eru í 5. sæti í 1. deildinni með átta stig eftir tíu leiki. Efsta liðið vinnur sér keppnisréttinn í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en liðin sem enda í 2.-4. sæti fara í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni ásamt liðinu sem lendir í næst neðsta sæti í úrvalsdeildinni.