„Viðureignir FH og Hauka eru hverju sinni krydd í tilveruna í íslenskum handknattleik. Áhorfendur fjölmenna og leikirnir eru jafnir og spennandi. Á þessu verður engin breyting í kvöld en það er alveg ljóst við Haukamenn ætlum okkur að vinna," segir Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, um Hafnarfjarðarslaginn á mill FH og Hauka í N1-deild karla í handknattleik sem fram er í Kaplakrika í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Leikurinn í Hafnarfirði er einn fjögurra leikja sem er á dagskrá í deildinni í kvöld. Klukkan 19 taka Akureyringar á móti Gróttu í íþróttahöllinni á Akureyri. Hálftíma síðar hefjast síðan viðureignir FH og Hauka í Kaplakrika, Vals og Stjörnunnar á heimavelli Vals og leikur HK og Fram í Digranesi.
Haukar eru efstir í deildinni með 16 stig að loknum 10 leikjum. FH og Valur koma næst í öðru og þriðja sæti með 13 stig. Þá kemur Akureyri með 11 stig eftir 10 leiki og HK með 11 stig að loknum 9 leikjum. Grótta hefur 8 stig, Stjarnan 4 og Fram rekur lestina með 2 stig. HK er eina liðið sem Fram hefur unnið í deildinni í vetur.
FH og Haukar hafa leitt saman hesta sína tvisvar sinnum á keppnistímabilinu. Haukar hafa unnið báða leikina, 29:26, í deildinni á Ásvöllum og 38:37, eftir tvíframlengdan leik í Eimskipsbikarnum.
„Við fengum að bragða á því á síðustu leiktíð hversu vont það er að tapa fyrir FH og höfum ekki áhuga á að reyna það aftur," segir Aron í léttum dúr spurður út í fyrri leiki leiki liðanna.