Viggó Sigurðsson og strákarnir hans í ÍR lögðu Selfoss, 30:28, í 1. deild karla í handknattleik í kvöld en Viggó tók nýlega við þjálfun Breiðholtsliðsins. Andri Friðriksson var markahæstur í liði ÍR með 9 mörk og Jónatan Vignisson skoraði 7. Hjá Selfyssingum var Atli Kristinsson atkvæðamestur með 6 mörk. Í Mosfellsbæ hafði Afturelding betur gegn Víkingi, 25:23.
Selfoss er efst í deildinni með 20 stig, Afturelding 19, ÍBV 14, Víkingur 13, ÍR 12, Fjölnir 3 og Þróttur 1.