Gummersbach og Lemgo áfram

Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk í Portúgal.
Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk í Portúgal. mbl.is/Kristinn

Íslendingaliðin Gummersbach og Lemgo eru komin í 8-liða úrslitin í EHF-bikarnum og Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik en bæði unnu liðin góða sigra í Portúgal í gærkvöld.

Gummersbach hafði unnið Braga naumlega á heimavelli, 30:26, en náði að halda sínum hlut í Portúgal og sigraði 28:27. Róbert Gunnarsson skoraði 3 marka þýska liðsins í leiknum.

Lemgo hafði hinsvegar tapaði mjög óvænt fyrir Benfica á heimavelli, 27:30. Liðið sneri blaðinu gjörsamlega við og vann stórsigur í Lissabon, 31:18. Logi Geirsson lék með Lemgo en skoraði ekki en Vignir Svavarsson var ekki með vegna meiðsla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert