Stórskyttan Rúnar Kárason hjá þýska handknattleiksliðinu Füchse Berlin skoraði eitt af fimm fallegustu mörkum 21. umferðar þýsku 1. deildarinnar. Markið skoraði Rúnar í leik við Göppingen á útivelli og var 24. mark Berlínarliðsins og hið eina sem hann skoraði í leiknum.
Hægt er að sjá markið með því að smella hér en það er annað í þessari syrpu.
Rúnar gekk til liðs við Füchse Berlin á síðasta ári og hefur verið vaxandi í leik liðsins eftir því á keppnistímabilið hefur liðið. Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin sem er um miðja þýsku 1. deildina. Alexander Petersson gengur til liðs við það í sumar.