Allt benti til þess í gærkvöldi að Hreiðar Levy Guðmundsson leiki ekki með íslenska landsliðinu gegn Frökkum á morgun og laugardag þar sem félag hans, TV Emsdetten, neitar að gefa hann lausan í landsleikina.
Félagið virðir að vettugi reglur um að leikmenn séu lausir frá liðum sínum til landsleikja á alþjóðlegum leikdögum eins og nú.
Nánar er fjallað um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.