Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel höfðu betur gegn Rhein-Neckar Löwen í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli Löwen í Mannheim.
Kiel sigraði með eins marks mun 29:28 og á síðari leikinn til góða á heimavelli að viku liðinni. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 3 mörk fyrir Löwen og Ólafur Stefánsson 1.