Arnar Pétursson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í handknattleik. Arnar, sem lék með liðinu í 1. deildinni í vetur, tekur við þjálfun liðsins af Svavari Vignissyni ,sem stýrt hefur Eyjaliðinu undanfarin tvö ár. Þetta kemur frá á vef Eyjafrétta.
Svavar, sem eing og Arnar er fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur, fer ekki langt því hann mun taka við þjálfun kvennaliðs ÍBV.