Guðmundur Þórður valdi tvo nýliða

Atli Ævar Ingólfsson línumaðurinn sterki er nýliði í landsliðshópnum.
Atli Ævar Ingólfsson línumaðurinn sterki er nýliði í landsliðshópnum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið 16 leikmenn til þátttöku á World Cup sem fram fer í Svíþjóð dagana 7. og 8. desember. Ísland tekur þar þátt ásamt Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Tveir nýliðar eru í hópnum, Sveinbjörn Pétursson markvörður sem leikur með Akureyri og línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson úr HK.

Þar sem ekki er um að ræða alþjóðlega leikviku eiga ekki allir leikmenn heimangengt. Björgvin Páll Gústavsson, Hreiðar Levý Guðmundsson og Þórir Ólafsson eiga allir leiki með sínum félagsliðum, Ólafur Stefánsson og Vignir Svavarsson fá frí af persónulegum ástæðum og Guðjón Valur Sigurðsson er að stíga uppúr meiðslum.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:

Birkir Ívar Guðmundsson – 138 landsleikir - Haukar
Sveinbjörn Pétursson – Nýliði – Akureyri

Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson - 107 landsleikir – Füchse Berlin
Arnór Atlason - 97 landsleikir – AG Köbenhavn
Arnór Þór Gunnarsson – 8 landsleikir – TV Bittenfeld
Aron Pálmarsson - 25 landsleikir – THW Kiel
Atli Ævar Ingólfsson – Nýliði - HK
Ásgeir Örn Hallgrímsson - 132 landsleikir – Hannover-Burgdorf
Bjarni Fritzson – 39 landsleikir – Akureyri
Ingimundur Ingimundarson - 79 landsleikir – AaB
Oddur Gretarsson – 7 landsleikir – Akureyri
Róbert Gunnarsson - 172 landsleikir - Rhein Neckar Löwen
Sigurbergur Sveinsson - 27 landsleikir - Rheinland
Snorri Steinn Guðjónsson - 166 landsleikir – AG Köbenhavn
Sturla Ásgeirsson – 53 landsleikir – Valur
Sverre Jakobsson - 94 landsleikir - Grosswallstadt
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert