Alexander íþróttamaður ársins

Alexander Peterson tekur við verðlaunagripnum úr hendi formanns Samtaka íþróttafréttamanna, …
Alexander Peterson tekur við verðlaunagripnum úr hendi formanns Samtaka íþróttafréttamanna, Sigurðar Elvars Þórólfssonar. mbl.is/Kristinn

Handknattleiksmaðurinn Alexander Petersson varð efstur í kjöri samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2010 sem tilkynnt var í kvöld. Mjótt var á munum hjá efstu mönnum en knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson varð í 2. sæti og fimleikakonan Íris Mist Magnúsdóttir í 3. sæti.

Alls hlutu 26 íþróttamenn atkvæði í kjörinu. Alexander, sem leikur með Füchse Berlin í Þýskalandi og var í bronsliði Íslands á EM í janúar síðastliðnum, hlaut 307 stig en Gylfi Þór, leikmaður Hoffenheim, hlaut 283 stig. Íris Mist, sem varð Evrópumeistari með Gerplu í haust, hlaut 171 stig.

Röð íþróttamannanna 26 og stigafjölda hvers þeirra má sjá hér að neðan.

1. Alexander Petersson, handknattleikur, 307
2. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna, 283
3. Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikar, 171
4. Aron Pálmarsson, handknattleikur, 123
5. Arnór Atlason, handknattleikur, 105
6. Ólafur Stefánsson, handknattleikur, 102
7. Hlynur Bæringsson, körfuknattleikur, 65
8. Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttir, 62
9. Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrna, 61
10. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund, 47


11. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir, 40
12. Róbert Gunnarsson, handknattleikur, 30
13.-14. Þóra B. Helgadóttir, knattspyrna, 25
13.-14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf, 25
15. Helena Sverrisdóttir, körfuknattleikur, 19
16. Grétar Rafn Steinsson, knattspyrna, 17
17. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, handknattleikur, 13
18. Ragna Ingólfsdóttir, badminton, 9
19. Alfreð Finnbogason, knattspyrna, 8
20. Björgvin Páll Gústavsson, handknattleikur, 5


21. Ragnheiður Ragnarsdóttir, sund, 4
22. Jón Margeir Sverrisson, sund fatlaðra, 3
23.-24. Sölvi Geir Ottesen, knattspyrna, 2
23.-24. Jakob Jóhann Sveinsson, sund, 2
25.-26. Björgvin Björgvinsson, skíði, 1
25.-26. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar, 1

Alexander Petersson, íþróttamaður ársins 2010.
Alexander Petersson, íþróttamaður ársins 2010. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert