Birkir Ívar hjá Haukum til 2012

Birkir Ívar Guðmundsson í leik með Haukum.
Birkir Ívar Guðmundsson í leik með Haukum. mbl.is/Kristinn

Markvörðurinn þrautreyndi, Birkir Ívar Guðmundsson, hefur framlengt samning sinn við Íslands- og bikarmeistara Hauka og verður í herbúðum liðsins út næstu leiktíð. Frá þessu er greint á heimasíðu Hauka.

Birkir Ívar er 34 ára og hefur leikið árum saman með Haukum en lék í Þýskalandi í millitíðinni. Hann kemur frá Vestmannaeyjum og hóf feril sinn í meistaraflokki með ÍBV. Hann átti stóran þátt í velgengni Hauka á síðustu leiktíð.

Birkir undirritaði nýjan samning um áramót og við sama tækifæri var skrifað undir leikmannasamninga við fjölda ungra leikmanna hjá félaginu. Bæði er um að ræða leikmenn í handknattleik og knattspyrnu og af báðum kynjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert