„Nú er bara að undirbúa sig fyrir stríð," segir Robert Hedin, landsliðsþjálfari Norðmanna í handknattleik um væntanlegan leik Íslendinga og Norðmanna í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Svíþjóð á fimmtudag.
Rætt er við Hedin á vef TV 2 í Noregi. Fram kemur að hann horfði á leik Íslands og Austurríkis í gær og segir að það hafi verið góður leikur og skemmtilegur á að horfa.