Ísfirðingurinn Sveinbjörn Pétursson hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu í marki Akureyringa í vetur og var í dag valinn besti leikmaður umferða 8 - 14 í N1 deildinni í handknattleik.
Sveinbjörn hefur fengið viðurkenningar fyrir frammistöðu sína auk þess sem landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson hefur veitt framgöngu Sveinbjarnar eftirtekt.