Sami hópur gegn Þjóðverjum

Ólafur Stefánsson sækir að þýsku vörninni í leik Íslands og …
Ólafur Stefánsson sækir að þýsku vörninni í leik Íslands og Þýskalands í fyrrakvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik mun tefla fram sama leikmannahópi í leiknum gegn Þjóðverjum á sunnudaginn og hann var með í fyrrakvöld þegar Íslendingar lögðu Þjóðverja, 31:26, í fyrri rimmu þjóðanna í undankeppni Evrópumótsins.

Akureyringarnir Oddur Gretarsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson voru utan hóps á miðvikudaginn og þeir fóru ekki með liðinu til Þýskalands í morgun.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert