Roland Eradze í þriggja leikja bann

Roland Eradze í leik með Stjörnunni í fyrra.
Roland Eradze í leik með Stjörnunni í fyrra. mbl.is/Kristinn

Roland Valur Eradze, þjálfari Stjörnunnar, mun ekki stýra liði sínu í oddaleiknum gegn ÍR annað kvöld þar sem hann var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann af aganefnd HSÍ.

Roland fékk útilokun með skýrslu á lokamínútu leiks liðanna í Garðabæ í gærkvöldi vegna „mjög grófrar óíþróttamannslegrar framkomu“ eins og það er orðað í úrskurði nefndarinnar. Var Roland dæmdur í tveggja leikja bann vegna þessa en einn leikur bætist við refsinguna vegna þess að hann var áður úrskurðaður í bann á þessu keppnistímabili.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert