Stjarnan sendir ekki lið til keppni

Elísabet Gunnarsdóttir leikmaður Stjörnunnar.
Elísabet Gunnarsdóttir leikmaður Stjörnunnar. Ómar Óskarsson

Stjarnan mun ekki tefla fram kvennaliði í handknattleik á komandi leiktíð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Stjarnan sendi frá sér í kvöld. Stjarnan hefur verið fremstu röð kvennaliða mörg undanfarin ár og hefur hampað fjölda titla. Á síðustu leiktíð hafnaði liðið í þriðja sæti í deildarkeppninni og var slegið út af Fram í úrslitakeppninni.

Fréttatilkynningin frá Stjörnunni

Handknattleiksdeild Stjörnunnar í Garðabæ hefur að  vel yfirlögðu ráði tekið ákvörðun um að draga lið  meistaraflokks kvenna úr keppni í N1-deild kvenna á komandi keppnistímabili, 2011 – 2012.

Lið meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni hefur verið  í fremstu röð kvennaliða á Íslandi mörg undanfarin ár og unnið til fleiri titla á þessari öld en nokkurt annað kvennalið í handknattleik á Íslandi.   Að auki má fullyrða að liðið hefur verið  flaggskip Stjörnunnar í keppni liða á afreksstigi, óháð keppnisgreinum og fært félaginu fleiri titla en nokkurt annað  lið á vegum félagsins.  Því ætti að vera augljóst að ákvörðun sem þessi er ekki tekin í skyndi, né heldur með léttum huga.

Nokkrar ástæður liggja að baki ákvörðuninni, bæði utanaðkomandi og innan félags.  Öllum er ljóst að rekstur íþróttaliða  á afreksstigi hefur verið afar þungur á undanförnum árum og erfitt að standa undir kostnaði við rekstur margra liða innan eins félags á afreksstigi.  Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur þar ekki verið undanskilin og deildinni reynst afar erfitt að afla þeirra fjármuna sem nauðsynlegir eru í slíkum rekstri, sem og stuðnings við það starf sem unnið hefur verið innan deildarinnar til að viðhalda afreksstarfi.  Kvennalið Stjörnunnar varð einfaldlega undir í þeim slag, þrátt fyrir frábæran árangur undanfarinna ára. 

Nú er svo komið að þeir aðilar sem borið  hafa hita og þunga af þessu starfi eru þess ekki megnugir að  halda því áfram án frekari stuðnings.  Markmið sem sett voru fyrir komandi keppnistímabil og virtust innan seilingar í sumar munu ekki ganga eftir, m.a. vegna hræringa á leikmannamarkaði, þar sem lög og reglur HSÍ um samskipti félaga við leikmenn eru í sumum tilfellum virt að vettugi.  Stjórnendur Stjörnunnar taka ekki þátt í slíkum vinnubrögðum, né hafa yfir því fjármagni að ráða sem önnur félög virðast hafa og því varð félagið ósköp einfaldlega undir á mjög viðkvæmum leikmannamarkaði kvennahandboltans.

Við fögnum því í sjálfu sér, að önnur félög horfi til leikmanna Stjörnunnar þegar nauðsyn er á styrkingu viðkomandi liða, en ítrekum óánægju okkar með að sum félög skuli ekki virða lög og reglur HSÍ um samningsbundna leikmenn.

Framundan eru stór verkefni í íslenskum kvennahandknattleik.  Landsliðið hefur í fyrsta sinn unnið sér keppnisrétt í úrslitum heimsmeistaramóts og spilar í Brasilíu  í desember n.k.  Allir metnaðarfullir leikmenn vilja að  sjálfsögðu vinna sér sæti í landsliðinu og til þess þarf félag  viðkomandi leikmanns að bjóða upp á bestu fáanlegu umgjörð þannig að leikmaðurinn taki framförum og eigi kost á að ná markmiðum sínum.  Það getur Stjarnan ekki gert við núverandi aðstæður.

Við óskum öllum leikmönnum sem hafa keppt á vegum Stjörnunnar undanfarin ár alls hins besta á nýjum vígstöðum.  Jafnframt óskum við kvennahandboltanum á Íslandi góðs gengis og hörmum að þurfa að taka þessa ákvörðun – en hjá henni verður því miður ekki komist.

Með handknattleikskveðju,

Stjórn Hkd. Stjörnunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka