Einar Andri: Ekki draumabyrjun

Einar Andri Einarsson, annar þjálfari Íslandsmeistara FH í handknattleik, var að vonum vonsvikinn eftir fimm marka tap í fyrsta leik liðsins í N1-deildinni á heimavelli fyrir Fram í kvöld, 28:23.

Hann sagði úrslitin vera langt frá því sem að var stefnt. Liðið hafð þó sýnt baráttu þegar á leið leikinn og allt var komið í kaldakol. Ljóst sé að mikið verk sé enn fyrir höndum að púsla saman mikið breyttu liði frá síðustu leiktíð og að í næstu umferð, þegar FH sækir Akureyri heim, verði leikmenn FH-liðsins að vera með frá fyrstu mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert