Framarar í undanúrslit

Ingimundur Ingimundarson.
Ingimundur Ingimundarson. mbl.is/Árni Sæberg

Fram er komið í undanúrslit í bikarkeppni karla í handknattleik eftir sigur á utandeildarliði Heimsliðsins í Mýrinni í dag. Lokatölur urðu 34:28, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 16:12.

Ingimundur Ingimundarson og Einar Rafn Eiðsson voru atkvæðamestir í liði Fram með 6 mörk hvor en hjá Stjörnunni 2 var Hermann Björnsson markahæstur með 11 mörk og Pétur Magnússon skoraði 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert