Haukar unnu Hafnarfjarðarslaginn

Nemanja Malovic, Haukum, og Baldvin Þorsteinsson, FH, eigast við í …
Nemanja Malovic, Haukum, og Baldvin Þorsteinsson, FH, eigast við í leiknum í Kaplarkika í kvöld. mbl.is

Haukar fara inn í jólafríið með fimm stiga forskot á toppi N1-deildar karla í handknattleik eftir glæsilegan sigur á Íslandsmeisturum FH, 21:16, í Kaplakrika í kvöld. Staðan var 15:15 þegar skammt var eftir. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Gylfi Gylfason var markahæstur hjá Haukum með 8 mörk og Freyr Brynjarsson skoraði 4. Hjá FH var Ólafur Gústafsson með 7 mörk og Daníel Freyr Andrésson varði eins og berserkur. Það gerði kollegi hans Aron Rafn Eðvarðsson líka á lokakaflanum.

FH 16:21 Haukar opna loka
60. mín. Sigurður Ágústsson (FH) skoraði mark Gott mark af línunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert