Kvennalið Hauka skiptir um þjálfara í sumar

Einar Jónsson.
Einar Jónsson. mbl.is

Einar Jónsson mun ekki stýra kvennaliði Hauka í N1-deildinni í handknattleik á næstu leiktíð. Uppsagnarákvæði er í samningi Einars sem stjórn Hauka ætlar að nýta sér.

Frá þessu er greint á netmiðlinum Sport.is en þar er rætt við Einar og segir hann málið hafa verið leyst í sátt og samlyndi.

Haukar eru í næstneðsta sæti deildarinnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert