Erlingur ráðinn þjálfari hjá ÍBV

Erlingur handsalar samning við ÍBV.
Erlingur handsalar samning við ÍBV. Ljósmynd/ibvsport.is

Erlingur Richardsson skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Erlingur hefur verið ráðinn yfirþjálfari ÍBV og verður með Arnari Péturssyni sem þjálfari karlaliðs félagsins.

Erlingur mun jafnframt sinna hlutverki forstöðumanns íþróttaakademíu ÍBV en hún er í samstarfi við grunn- og framhaldsskóla Vestmannaeyja og þá mun hann hafa yfirumsjón með þjálfun yngri flokka ÍBV.

Erlingur hefur þjálfað hjá HK í Kópavogi síðustu 5 ár, fyrst sem þjálfari kvennaliðsins og síðustu tvö árin sem þjálfari karlaliðsins ásamt Kristni Guðmundssyni og undir þeirra stjórn varð HK Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins á dögunum þegar HK hafði betur í úrslitaeinvígi gegn FH.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert