Haukum er spáð Íslandsmeistaratitli karla í handknattleik en Íslandsmeisturum HK er hinsvegar spáð falli og Val umspilssæti. Það er niðurstaðan í könnun meðal þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna í N1-deild karla sem gerð var á kynningarfundi deildarinnar í dag.
Haukar fengu all afgerandi kosningu en miðað við stigatölurnar er búist við jöfnu Íslandsmóti að öðru leyti. Niðurstaðan varð þessi:
1. Haukar 237
2. FH 193
3. ÍR 175
4. Akureyri 170
5. Afturelding 130
6. Fram 128
7. Valur 112
8. HK 103