Handknattleikskonan Stella Sigurðardóttir hefur verið útnefnd íþróttamaður Fram fyrir árið 2012.
Stella var valin besti leikmaðurinn í N1-deild kvenna á síðasta keppnistímabili, var jafnframt valin besta vinstri skytta deildarinnar og er handhafi Sigríðarbikarsins. Þá lék hún með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Serbíu í desember.