„Þetta er búið að vera algjörlega skelfilegt. Reyndar er dagamunur á mér, og suma daga er þetta alveg bærilegt, en aðra daga er þetta alveg óbærilegt. Þá kemst ég bara ekki fram úr rúminu, finn fyrir miklum hausverk, þyngslum í höfðinu, sjóntruflunum og annarri vanlíðan,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir við Morgunblaðið í gær.
Rakel hefur verið ein albesta handknattleikskona landsins um árabil en vegna höfuðmeiðsla sem hún varð fyrir á landsliðsæfingu undir lok nóvember tilkynnti hún í gær að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna, aðeins 27 ára gömul.
„Þetta er eitthvað sem ég neyðist til að gera samkvæmt læknisráði,“ sagði Rakel.
„Ég bjóst engan veginn við því að þetta höfuðhögg myndi draga svona dilk á eftir sér. Það er bara núna rétt upp á síðkastið sem maður hóf að leiða hugann að því að maður myndi ekki ná úrslitakeppninni með Stjörnunni í vor, vegna þess að framfarirnar eru alveg rosalega hægar. Þegar ég fór svo og hitti sérfræðilækna í síðustu viku hristu þeir bara hausinn yfir mér og sögðu að tímabilið væri búið hjá mér, og mjög líklega hluti af næsta tímabili líka. Þá fór maður að gera sér betur grein fyrir því hvað þetta var alvarlegt höfuðhögg,“ sagði Rakel.
Sjá viðtalið í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag