Franska handboltaliðið París Handball með íslensku landsliðsmennina Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson innanborðs, tapaði fyrir ungverska félaginu Veszprém, 28:26 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Leikið var í París í dag.
Ásgeir Örn skoraði eitt mark fyrir PSG í dag en Róbert Gunnarsson var ekki meðal markaskorara. Jeffrey M'Tima var markahæstur hjá Parísarliðinu með 5 mörk. Hjá Veszprém átti Laszlo Nagy stórleik og skoraði 9 mörk og Momir Ilic skoraði 7.
PSG hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 14:12 en Veszprém vann sig vel inn í leikinn í seinni hálfleik og fagnaði að lokum mikilvægum tveggja marka útisigri.
Síðari leikur liðanna verður að viku liðinni í Ungverjalandi.