Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður hjá SK Aarhus, er í úrvalsliðið áttundu umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik hjá handboltamiðlinum hbold.dk.
Arna Sif átti stórleik, jafnt í vörn sem sókn, hjá Árósar-liðinu þegar það mætti Team Esbjerg á útivelli á síðasta miðvikudag. SK Aarhus tapaði leiknum með tveggja marka mun. Arna Sif skoraði átta mörk í leiknum og var markahæsti leikmaður liðsins.
Þetta er í fyrsta sinn á leiktíðinni sem íslensk handknattleikskona er í úrvalsliði dönsku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð.