Þýskalandsmeistarar Kiel máttu sætta sig við tap gegn Evrópumeisturum Flensburg þegar liðin mættust á heimavelli Flensburg.
Flensburg fagnaði sigri, 26:22, þar sem sænski markvörðurinn Mattias Andersson fór á kostum á milli stanganna hjá Flensburg en hann varði á þriðja tug skota í leiknum.
Flensburg hafði undirtökin allan tímann og í hálfleik var munurinn fjögur mörk, 15:11. Aron Pálmarsson stóð fyrir sínu í liði Kiel en hann skoraði 5 mörk.