Ólöf Kolbrún til ÍBV

Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir.
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir. hag / Haraldur Guðjónsson

Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir fékk í dag félagaskipti úr HK yfir til ÍBV og leikur með Eyjaliðinu út keppnistímabilið, hið minnsta, í Olís-deild kvenna. Hún hefur þar með ákveðið að taka fram keppnisskóna á nýjan leik en þeir hafa verið á hillunni góðu frá því í fyrravor. 

Ólöf Kolbrún hefur ekkert leikið með HK á leiktíðinni en hún hefur leikið upp alla yngri flokka með félaginu en faðir hennar Ragnar Ólafsson, kylfingur, er einn stofnfélaga HK. Hún var um skeið í íslenska landsliðinu og á að baki 15 landsleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert