Sigurganga Spánarmeistara Barcelona í handboltanum hélt áfram í kvöld en Börsungar burstuðu Cangas, 43:22, á heimavelli sínum.
Stjörnum prýtt lið Barcelona hefur þar með unnið alla 19 leiki sína og liðið stefnir hraðbyri að enn einum meistaratitlinum.
Það sem meira er - þetta var 50. sigur Barcelona í röð í spænsku 1. deildinni en liðið hefur unnið alla sína leiki frá því í næstsíðustu umferð vorið 2013.
Guðjón Valur Sigurðsson hafði hægt um sig í kvöld en hann komst ekki á blað í leiknum. Wael Jallouz var markahæstur í Katalóníuliðinu með 7 mörk og Siarhei Rutenka kom næstur með 5 mörk.